2,7 stiga skjálfti í Bárðarbungu

Skjálfti mældist í Bárðarbungu í morgun.
Skjálfti mældist í Bárðarbungu í morgun. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti af stærðinni 2,7 mæld­ist í Bárðarbungu­öskju klukk­an 5.58 í dag.

„Það er algengt að fá skjálfta af þessari stærð í Bárðarbungu og hefur verið að gerast öðru hverju,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Í gær mældist jarðskjálfti af stærðinni 3,4 mæld­ist í norðan­verðri Bárðarbungu­öskju. Í kjölfarið fylgdi annar ann­ar skjálfti að stærð 1,2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert