Framkvæmdir að hefjast í Frostaskjóli

Þórhildur Garðarsdóttir er formaður KR.
Þórhildur Garðarsdóttir er formaður KR. mbl.is/Sigurður Bogi

Reykjavíkurborg hefur nú auglýst eftir þátttakendum í forval verktaka sem annast myndu byggingu fjölnotahúss á íþróttasvæði KR við Frostaskjól.

Betri aðstaða og nýjar byggingar hafa lengi verið baráttumál félagsins og nú eru þau mál loksins að komast á hreyfingu.

„Við höfum í raun dregist aftur úr, því á síðustu áratugum hefur aðstaða flestra annarra íþróttafélaga í borginni verið endurbætt. Þessu höfum við mjög fundið fyrir í starfi KR,“ segir Þórhildur Garðarsdóttir í samtali við Morgunblaðið.

Nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert