Hlutfall barna og unglinga sem horfa á klám lækkar

Þrír af hverjum fjórum strákum í framhaldsskóla hafa horft á …
Þrír af hverjum fjórum strákum í framhaldsskóla hafa horft á klám. mbl.is/ThinkstockPhotos

Þrír af hverjum fjórum strákum í framhaldsskóla hafa horft á klám. Hlutfall stelpna er nokkru lægra eða 41 prósent.

Á unglingastigi hefur einn af hverjum þremur strákum horft á klám og ein af hverjum tíu stelpum. Lægra hlutfall bæði stráka og stelpa á unglingastigi og á framhaldsskólaaldri segjast hafa horft á klám nú en 2021.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um klámáhorf grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ár. Skýrslan er fjórði hluti af sex og byggir á niðurstöðum könnunarinnar „Börn og netmiðlar“ sem Menntavísindastofnun framkvæmdi fyrir Fjölmiðlanefnd í 53 grunnskólum og 25 framhaldsskólum.

Þrefalt fleiri strákar en stelpur á unglingastigi horfðu á klám

Þátttakendur í 7.-10. bekk grunnskóla og nemendur 18 ára og yngri í framhaldsskóla fengu nokkrar spurningar um klámáhorf á netinu, þ.e. hvort þeir hafi horft á klám, hvernig þeir upplifðu það og hvort og hvar þeir sæju klámauglýsingar á netinu. Í 7. bekk hafði 5% nemenda horft á klám en í 8.-10. bekk hafði hlutfallið hækkað í 23%.

Í framhaldsskóla var hlutfallið rúmlega tvöfalt hærra en á unglingastigi eða 52%. Rúmlega þrefalt fleiri strákar en stelpur á unglingastigi höfðu horft á klám. Í framhaldsskóla eru strákar tæplega tvöfalt líklegri en stelpur til að hafa horft á klám.

Í 7. bekk var hærra hlutfall þátttakenda en á unglinga- eða framhaldsskólastigi sem hafði horft á klám vegna þess að vinur eða vinkona hafði sýnt þeim klámið. Rúmlega helmingur stráka (56%) í 8.-10. bekk höfðu leitað að kláminu sjálfir en meðal stelpna er hlutfallið 43%.

Í framhaldsskóla var hlutfallið mun hærra meðal þeirra sem höfðu leitað sjálfir að kláminu, strákar 74% og stelpur 61%. Örfáir í þessum aldurshópum sögðu að vinir eða vinkonur hefðu sýnt þeim klámið. Í 8.-10. bekk voru rúmlega tveir af hverjum tíu svarendum sem mundu ekki af hverju þeir horfðu á klámið.

Fleiri strákum en stelpum líkar að horfa á klám

Þeir þátttakendur sem sögðust hafa horft á klám voru spurðir hvernig þeir upplifðu það. Nokkuð fleiri strákum en stelpum á báðum skólastigum líkaði það eða fannst spennandi að skoða klám.

Í framhaldsskóla voru strákar um 19% fleiri en stelpur sem líkaði klám eða þótti spennandi að skoða það. Stelpur voru nokkuð fleiri á báðum skólastigum sem var sama þótt þær hefðu horft á klám.

Allir þátttakendur á unglinga- og framhaldsskólastigi voru spurðir hvort þeir hefðu séð auglýsingu um klám á netinu. Nokkuð fleiri strákar en stelpur höfðu séð slíkar auglýsingar. Flestir á báðum skólastigum höfðu séð klámauglýsingar á ólöglegum streymissíðum.

Skýrslan í heild sinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert