Fá fjórar ferðir greiddar í stað tveggja

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað vegna heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast núna við fjórar ferðir en ekki lengur tvær á hverju almanaksári.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Stjórnarráðinu.

Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra tók gildi 1. júlí og fjölgaði ferðum vegna þess í fjórar.

„Þetta er mikilvægt byggðamál sem styður jafnframt það grundvallarmarkmið heilbrigðisstefnu að bæta og jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag“ er haft eftir Willum í tilkynningunni.

Þjónusta sem ekki er í heimabyggð

Þá segir að samhliða fjölgun endurgreiddra ferða hafi umsóknarferli Sjúkratrygginga Íslands í tengslum við endurgreiðslu ferðakostnaðar verið einfaldað. Til þessa hafi þurft að skila inn læknisvottorði vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar en með breytingunni sé sú skylda felld niður.

Sjúkratryggðir einstaklingar þurfa nú eingöngu að leggja fram kvittanir fyrir ferðakostnaði til Sjúkratrygginga og staðfestingu á komu ef um komu á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun er um að ræða, segir í tilkynningunni.

Réttur til endurgreiðslu ferðakostnaðar nær til sjúkratryggða einstaklinga vegna nauðsynlegra ferða eftir þjónustu sem ekki er fyrir hendi í heimabyggð og vegalengd milli staða er 20 kílómetrar eða lengri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert