Framkvæmdir verða við Gullinbrú á morgun frá kl 9 til 18.
Gullinbrú verður fræst á gatnamótum við Fjallkonuveg og Lokinhamra.
Á föstudag er gert ráð fyrir að gatan Völundarhús verði malbikuð og jafnframt Fríkirkjuvegur. Er gert ráð fyrir að framkvæmdir muni standa yfir frá kl. 9 til 16.
Ekkert verður af malbikun í Breiðavík sem fyrirhugað var að framkvæma á morgun.