Hafa dreift 2.600 naloxón-nefúðum á 2 árum

Frú Ragnheiður er skaðaminnkunarverkefni sem Rauði krossin á Íslandi rekur.
Frú Ragnheiður er skaðaminnkunarverkefni sem Rauði krossin á Íslandi rekur. Ljósmynd/Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Frú Ragnheiður hefur frá árinu 2022 dreift hátt í 2.600 nefúðum með lyfinu naloxón ýmist til einstaklinga, stofnana eða skemmtistaða. Þetta segir Sólveig Gísladóttir, verkefnastýra frú Ragnheiðar, í samtali við mbl.is.

Naloxón-nefúði er mótefni við of stórum skammti af ópíóíða og er notað sem neyðarmeðferð.

Nú er lyfið lyfseðilsskylt en heilbrigðisráðuneytið hefur verið með það í vinnslu síðan í apríl í fyrra að koma lyfinu í lausasölu. Helsta hindrunin felst í samningsskuldbindingum markaðsleyfishafa lyfsins í Noregi við þriðja aðila.

Heilsugæslur gætu dreift lyfinu

„Þetta er mjög mikilvægt skaðaminnkandi inngrip og við viljum sjá naloxón sem víðast og koma þessu sem mest í umferð,“ segir Sólveig og kallar eftir því að fleiri heilbrigðisstofnanir, eins og heilsugæslur, flytji inn lyfið og það komist þar af leiðandi í frekari umferð. 

„Ég myndi vilja sjá þetta aðgengilegra á til dæmis heilsugæslum, því þær hafa sama leyfi og við til að sækja um þetta og fá að dreifa þessu eins og við.“

Spurð hvort hún sjái fyrir sér einhverjar aðrar skaðaminnkandi aðgerðir í málaflokknum á meðan að beðið er eftir að naloxón komist í lausasölu, segir hún að það megi margt betur fara í málaflokknum. 

„Það eru langir biðlistar inn í allar meðferðir, erfitt að komast inn í afvötnun og það er bara mjög alvarlegt mál. Það þarf að gera betur í þessum málaflokk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert