Hiti gæti náð 16 stigum um landið suðvestanvert í dag, en jafnframt eru líkur á skúrum síðdegis.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Hægfara lægð suðaustur af landinu stýrir veðrinu í dag. Áttin er norðlæg, víða gola, en strekkingur norðvestanlands. Skýjað og væta af og til á Norður- og Austurlandi, hiti yfirleitt 6 til 11 stig. Bjart með köflum um landið suðvestanvert, en líkur á skúrum síðdegis og getur hiti þar náð 16 stigum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Þá kemur fram að svipað veður verði á morgun og á laugardag, en það dragi úr vindi norðvestan til.