Lítill sveigjanleiki frekar vandamálið

Fjöldi apóteka á landinu í árslok 2023 var 74 en …
Fjöldi apóteka á landinu í árslok 2023 var 74 en það gerir um 5.240 íbúa á hvert apótek. Til samanburðar var talan 4.697 árið 2019. Ljósmynd/Colourbox

Forstjóri Lyfjastofnunar segir það ekki hlutverk sitt að hafa skoðun á fjölda apóteka en lyfsali sem Morgunblaðið ræddi við telur að frekar þurfi að skoða strangar reglugerðir um starfsemi apóteka.

Í blaðinu í gær var rætt við deildarforseta lyfjafræðideildar Háskóla Íslands, Berglindi Evu Benediktsdóttur, um áhyggjur Lyfjastofnunar af þeim fjölda nemenda sem innrita sig í námið og tillögur stofnunarinnar til að bregðast við því.

Berglind hélt fram að fjöldi lyfjafræðinema væri ekki áhyggjuefni en til að auka hlutfall faglærðs starfsfólks í apótekum þyrfti frekar að huga að starfsaðstæðum. Í því ljósi ætti að skoða hvort apótek séu ekki of mörg, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu.

Reykjavíkurborgar að hafa skoðun

Fjöldi apóteka á landinu í árslok 2023 var 74 en það gerir um 5.240 íbúa á hvert apótek. Til samanburðar var talan 4.697 árið 2019.

Forstjóri Lyfjastofnunar, Rúna Hauksdóttir Hvannberg, segir að vissulega séu apótek fleiri hér en annars staðar á Norðurlöndum en hlutverk Lyfjastofnunar sé ekki að hafa skoðun á hvort apótek séu of mörg.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert