3,1 stiga skjálfti við Lambafell

Skjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu.
Skjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Klukkan 07.17 í morgun varð skjálfti rétt vestan við Lambafell í Þrengslum af stærð 3,1.

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu og að ætla megi að hann hafi einnig fundist í Hveragerði.

„Smá hrina smáskjálfta hófst á þessu svæði í morgun kl 05:45. Skjálftahrinur eru algengar á þessu svæði,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert