Ekki að sjá að dregið hafi úr kvikuinnstreymi

Líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum …
Líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum og mánuðum. mbl.is/Árni Sæberg

Ekki er að sjá að dregið hafi úr kvikuinnstreymi inn í Svartsengi samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofu Íslands. 

Aflögunarmælingar sýna að landris á svæðinu heldur áfram og er það túlkað sem áframhaldandi kvikustreymi.

Enn eru líkur á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum og mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofunnar í dag. 

Frá því að gosinu lauk í Sundhnúksgígnum 22. júní hefur skjálftavirkni á Svartsengi verið mjög lítil og fáir smáskjálftar mælst á hverjum degi.

Kvikuinnstreymi síðan í janúar stöðugt

Líkan byggt á aflögunargögnum sýnir að innstreymi kviku á dýpi hafi að jafnaði verið á bilinu 4-6 m3/s þegar engin gos eru.

Líkanið endurspeglar því ekki heildarmagn kviku inn í kerfið frá nóvember 2023 heldur einungis það magn kviku sem streymir inn í kerfið þegar kerfið er lokað.

Heildarmagn gosefna ásamt rúmmálsbreytingum í Svartsengi bendir til þess að kvikuinnstreymi síðan um miðjan janúar sé nokkuð stöðugt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert