Enginn hlaut fyrsta vinning í lottóútdrætti kvöldsins og fara því rúmar 20 milljónir króna í pottinn á næsta laugardag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lottó.
Sjö hlutu annan vinning sem hljóðaði upp á 316 þúsund krónur. Þá hlaut enginn fyrsta vinninginn í Jóker en sjö hlutu annan vinning sem nam 100 þúsund krónum.
Í síðustu viku var sömu sögu að segja og hlaut enginn fyrsta vinninginn í útdrætti kvöldsins.