Myndskeið: Keyrði yfir umferðareyju og skilti

Ökumaður bifreiðar ók yfir umferðareyju og keyrði niður umferðarskilti í leiðinni er hann keyrði Ánanaust í Reykjavík fyrr í kvöld.

Að sögn sjónvarvottar laskaðist umferðareyjan verulega en á myndskeiðinu má sjá að bifreiðin tókst á loft er hún ók á umferðareyjuna. 

Hann gat ekki sagt til um hvernig ástand bifreiðarinnar hafi verið eftir áreksturinn.

Sendibifreiðin fer beint yfir umferðareyjuna.
Sendibifreiðin fer beint yfir umferðareyjuna. Ljósmynd/Aðsend
Umferðareyjan er illa farin.
Umferðareyjan er illa farin. Ljósmynd/Aðsend

Umferðareyjan varð fyrir miklu tjóni eftir að ökumaðurinn keyrði yfir hana eins og má sjá á myndunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert