Mennirnir tveir sem voru handteknir í tengslum við vopnamál í Rangárþingi ytra voru látnir lausir úr haldi í gær eftir yfirheyrslu hjá lögreglu.
Þetta staðfestir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til að aðstoða lögregluna á Suðurlandi vegna erja á milli einstaklinga.
Að sögn Jóns Gunnars var lagt hald á nokkur skotvopn og er málið nú í rannsókn.