Eldur kviknaði eftir bílveltu á Suðurlandsvegi

Ljósmynd/Aðsend

Bílvelta varð á Suðurlandsvegi við Rauðavatn nú í kvöld og kviknaði í bílnum. Ökumaðurinn hefur verið sendur til skoðunar en engir aðrir farþegar voru um borð í bílnum.

„Bíllinn rúllaði þarna líklega einn hring, svo kviknaði í honum og var einum manni kippt út út honum og hann var fluttur til skoðunar,” segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Ekki var hægt að greina frá ástandi ökumannsins að svo stöddu.

Frá vettvangi slyssins í kvöld.
Frá vettvangi slyssins í kvöld. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert