Fá vitjanabíl læknis á Akureyri

Valur Helgi Kristinsson og Guðrún Dóra Clarke.
Valur Helgi Kristinsson og Guðrún Dóra Clarke. Samsett mynd/Heilsugæslan Urðarhvarfi

Heilsugæslan Urðarhvarfi mun opna fyrir heimavitjanir á Akureyri með vitjanabíl læknis sem afhentur verður í ágúst. Eru þetta viðbrögð Heilsugæslunnar við kröfu Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) að tveir fyrrum heimilislæknar bæjarfélagsins myndu einungis hafa aðsetur hjá heilsugæslunni í Urðarhvarfi í Kópavogi en þar gátu þeir aðeins sinnt skjólstæðingum sínum fyrir norðan með rafrænum hætti eða símleiðis. 

Kemur þetta fram í nýrri færslu Heilsuverndar á Facebook en undir Heilsuvernd heyra Heilsugæslan Urðarhvarfi og Læknastofur Akureyrar.

Málið varðar undirskriftalista sem stofnaður var í júní þar sem þar sem skorað var á SÍ að semja um lækn­isþjón­ustu á Ak­ur­eyri við heim­il­is­lækn­ana Guðrúnu Dóru Cl­ar­ke og Val Helga Krist­ins­son.

Starfseminn á Akureyri stöðvuð

Hefur mbl.is greint frá því að Val­ur Helgi og Guðrún Dóra störfuðu lengi á heilsu­gæslu­stöð Heil­brigðis­stofn­un­ar Norður­lands á Ak­ur­eyri. Þau réðu sig svo fyr­ir nokkr­um mánuðum til starfa hjá heilsu­gæsl­unni í Urðar­hvarfi í Kópa­vogi en höfðu aðstöðu á Lækna­stof­um Ak­ur­eyr­ar.

Aðstöðu þeirra á lækna­stof­un­um var ætluð til að koma til móts við þarf­ir skráðra skjól­stæðinga heilsu­gæsl­unn­ar, sem búa á Ak­ur­eyri og vilja hitta heim­il­is­lækni sinn.

SÍ kröfðust þess í fe­brú­ar að lækn­arn­ir tveir hefðu ein­göngu aðset­ur á Urðar­hvarfi og var því starf­sem­in á Ak­ur­eyri stöðvuð tíma­bundið en fram kemur í færslu Heilsuverndar að skjólstæðingar þeirra á Akureyri hafi verið um 1000 einstaklingar. 

Um 800 undirskriftir komnar

Í færslu Heilsuverndar á Facebook segir að að Heilsugæslan Urðarhvarfi hafi unnið markvisst að því að geta veitt þjónustu heimilislækna á Akureyri. Hafi Valur Helgi og Guðrún Dóra sinnt skjólstæðingum sínum á Akureyri með rafrænum hætti og í gegnum síma.

Á undirskriftalistanum sem stofnaður var í júní eru nú ríflega 800 rafrænar undirskriftir og segir Heilsuvernd að gera megi ráð við fyrir að hátt í 3-4000. einstaklingar séu tilbúnir til að fylgja sínum læknum. 

„Við höfum ítrekað bent á það að skráning á heilsugæslu er frjáls og heilsugæslum er almennt ekki heimilt að meina skjólstæðingum um skráningu né afskrá þá. Þess vegna munum við áfram leita leiða til að sinna okkar skjólstæðingum og stefnum ótrauð að því að það verði einnig mögulegt á stofu á Akureyri innan tíðar,“ segir í færslu Heilsuverndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert