Hópur drengja réðst á annan dreng

Allir drengirnir eru á grunnskólaaldri.
Allir drengirnir eru á grunnskólaaldri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hópur dengja á grunnskólaaldri réðst á annan dreng í Kópavogi. Árásarþolinn hlaut skrámur í andliti.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dag­bók­in nær til verk­efna lög­reglu frá klukk­an 17 í gær til 05 í morg­un.

Héldu honum niðri

Í dagbókinni segir að drengirnir hafi haldið árásarþola niðri og veist að honum. Talið er mögulegt að barefli hafi verið beitt.

„Lögregla hitti árásarþola og föður hans á vettvangi en árásarþoli var með skrámur í andliti eftir á þar sem árásaraðilarnir voru farnir,“ segir í dagbókinni.

Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert