Lögregla leitar manns sem beraði sig fyrir konu

Lögreglustöð eitt leitar mannsins, hún sinnir verkefnum í stórum hluta …
Lögreglustöð eitt leitar mannsins, hún sinnir verkefnum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem beraði kynfæri sín fyrir konu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Lögreglustöð eitt leitar mannsins, en hún sinnir verkefnum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi.

Komst heim til sín

Í dagbókinni segir að karlmaðurinn hafi verið á bifreið og elti fótgangandi konu.

„Karlinn fór úr bifreiðinni sinni, kallaði á eftir konunni með buxurnar niðri um sig þannig að getnaðarlimur hans blasti við. Konan sagði í samtali við lögreglu að hún hafi komist heim til sín heil á húfi,“ segir í dagbókinni.

Leit stendur nú yfir að manninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert