„Nágrannar neita hljóðmælingum og hafa djöflast í okkur allar götur frá því áður en staðurinn var opnaður,“ segir Bragi Ægisson framkvæmdastjóri Skors eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um afgreiðslutíma til kl. ellefu í miðri viku og til eitt eftir miðnætti um helgar.
„Þeir mættu í úttekt byggingarfultrúa og heilbrigðiseftirlits og hafa kært hvert einasta leyfi sem við höfum fengið. Á annarri hæðinni eru allar íbúðirnar nema ein í túristaleigu og almennt mikið um partí í þessu húsi. Oft er hringt í lögregluna vegna hávaða í húsinu, líka þegar lokað er hjá okkur,“ segir Bragi.
Hann segir að Skor verði með styttri afgreiðslutíma eftir þennan úrskurð sem þýði að það verði opið til tíu í miðri viku og ellefu um helgar. Fyrirtækið muni sækja um leyfi aftur, sennilega í tíunda skiptið á þremur árum. Búið sé að gera úrbætur á húsnæðinu til að hljóðeinangra betur og karókí sé ekki lengur á staðnum.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.