Póstkassar skemmdir

Lögreglan þurfti að sinna ýmsum verkefnum í nótt.
Lögreglan þurfti að sinna ýmsum verkefnum í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um eignaspjöll á póstkössum í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti.

Ekki er vitað hverjir voru þar að verki, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  

Í sama umdæmi var tilkynnt um þjófnað.

Þá voru tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert