Mjög alvarlegt vinnuslys á byggingarsvæði

Tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan 16.
Tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan 16. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alvarlega vinnuslysið sem mbl.is greindi frá á fimmta tímanum í dag varð á byggingarsvæði í Urriðaholti. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Þrír sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang.

Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að einn hefði verið fluttur á sjúkrahús. Ekki fengust frekari upplýsingar um líðan viðkomandi. 

Í tilkynningunni er slysið sagt mjög alvarlegt. Er rannsókn málsins sögð vera á frumstigi og kveðst lögreglan ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert