Alls ekki hætta sér inn í íshella að sumarlagi

Íshellar geta myndast þar sem jökulvatn rennur undan jökulsporði í …
Íshellar geta myndast þar sem jökulvatn rennur undan jökulsporði í vatnsmiklum rásum. mbl.is/RAX

Íshellar geta myndast þar sem jökulvatn rennur undan jökulsporði í vatnsmiklum rásum. Á meginjöklinum hripar leysingarvatn í ótal taumum niður á botn en safnast þar í fáa farvegi.

Þetta kemur fram í svari á vef Vísindavefs Háskóla Íslands við spurningunni: Hvernig myndast íshellar?

Höfundur svarsins er Helgi Björnsson, prófessor emeritus í jöklafræði. 

Hann segir í svarinu, að núningsvarmi í vatnsrásunum bræði stöðugt ísveggina og við það stækki hvelfingar. Ísfargið á þunnum sporðinum nái ekki að pressa saman göngin og þegar leysingartíma lýkur, og vatn hverfur úr göngunum, geti þau staðið opin langt fram á vetur. Þegar leysing hefst á ný að vori taki göngin aftur að vaxa. 

Getur verið hætta á súrefnisskorti

„Jökulsporðurinn er á sífelldri hreyfingu, oft í rykkjum, einkum þegar hann rennur til á votum og sleipum botni. Þá hrynja oft ísjakar niður úr hvelfingunni. Óvænt vatnsflóð geta komið niður ísgöngin, jafnvel borist frá yfirborði jökulsins um lóðrétta svelgi. Sé farið langt inn í íshella getur verið hætta á súrefnisskorti,“ segir í svari Helga. 

Hann bendir enn fremur á, að kunnustu íshellarnir séu við sporð Breiðamerkurjökuls og Kötlujökuls.

Mikilvægt að fara með ýtrustu gát

Bráðnun íss geti einnig verið vegna jarðhita undir jökli, til dæmis í Kverkfjöllum og undir hjarnbreiðum í Kerlingarfjöllum og við Hrafntinnusker.

„Um alla þessa íshella ætti að fara með ýtrustu gát og alls ekki að hætta sér inn í þá að sumarlagi,“ skrifar Helgi. 

Eins og fram hefur komið þá varð banaslys á Breiðamerkurjökli fyrir rúmri viku þegar bandarískur ferðamaður varð undir ísfargi sem féll í íshelli. Greint hefur verið frá að starfshópur hafi verið skipaður af ríkisstjórninni sem mun fara yfir öryggismál í jöklaferðum og m.a. rannsaka hvað fór úrskeiðis á Breiðamerkurjökli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert