Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í Litlatúni

Slökkviliðið að störfum.
Slökkviliðið að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í verslunarkjarnanum Litlatúni í Garðabæ. Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um málið laust fyrir klukkan ellefu í morgun.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var eldurinn minniháttar. Þegar slökkviliðið var komið á vettvang hafði starfsfólk í kjarnanum leyst málið sjálft og þurfti slökkviliðið ekkert að aðhafast. 

Ekki var þörf á reykræstingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert