Ekið á gangandi vegfaranda

Konan var flutt á slysadeild.
Konan var flutt á slysadeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekið var á gangandi vegfaranda við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar í morgun.

Tilkynning um slysið barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu klukkan 8.45 og voru tveir sjúkrabílar sendir á vettvang.

Að sögn varðstjóra eru meiðslin talin minniháttar. Kona hlaut áverka á fæti og er hugsanlegt að hún hafi fótbrotnað. Hún var flutt á slysadeild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert