Of snemmt að segja til um goslok

Lítil sem enginn virkni er nú í gosinu.
Lítil sem enginn virkni er nú í gosinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Of snemmt er að segja til um goslok á Reykjanesskaga þó að lítil virkni sé nú í gosinu. Þetta segir Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

„Það hefur verið lítil sem enginn virkni í gosinu seinni partinn og dregið verulega úr gosóróa,“ segir Minney og bætir við:

„Það er of snemmt að staðhæfa hvort gosið sé búið eða ekki en það verður fylgst með í nótt hvort að virknin haldi áfram og svo verður afstaða tekin með sérfræðingum á morgun.“

Veðurstofan gaf fyrr í dag út tilkynningu þar sem segir að vís­bend­ing­ar séu um að landris sé hafið á ný í Svartsengi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert