Ráðist á nemanda - árásarmaðurinn huldi andlit sitt

Ráðist var á nemanda í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í dag.
Ráðist var á nemanda í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðist var á nemanda í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í dag. Nemandinn er á unglingastigi og var árásin gerð fyrir utan Akademíuna í Reykjanesbæ. Greint er frá þessu í frétt Víkurfrétta nú fyrir stundu og vísað í bréf sem skólastjórinn Hlynur Jónsson sendi á foreldra og forráðamenn barna í skólanum vegna málsins. 

„Honum varð sem betur fer ekki meint af en hefði getað hlotið mikinn skaða. Sá sem var gerandi í þessu máli huldi andlit sitt og vitum við því miður ekki hver var þar að verki. Þetta er að sjálfsögðu mál sem verður tilkynnt til lögreglunnar,“ segir skólastjórinn í bréfinu.

Í frétt Víkurfrétta kemur fram að foreldrar og forráðamenn séu hvattir að ræða við börnin sín heima og ef þau hafa frekari upplýsingar að koma þeim áleiðis til skólans.

„Mikilvægt að þegar samfélagið okkar upplifir atvik sem þetta að standa saman og aðstoða börnin við að vinna úr þeirra upplifun. Enda málefni okkar allra að stöðva slík atvik og standa vörð saman um börnin okkar,“ skrifar Hlynur Jónsson skólastjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert