ASÍ, BSRB og KÍ boða til mótmæla

Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ.
Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli þann 10. september næstkomandi, kl. 16:00. Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ, BSRB og KÍ en undir hana rita Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.

„Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næðis­kostnaðar. Ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna og rannsóknir sýna að fólk ber ekki von til að ástandið lagist í bráð,“ segir í tilkynningunni.

Hafi eftirlátið Seðlabankanum hagstjórnina

Í henni segir enn fremur að þrátt fyrir að þetta hafi verið brýnasta viðfangsefni stjórnvalda síðustu ár hafi þau með athafnaleysi sínu neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu og eftirlátið Seðlabankanum algerlega hagstjórnina. 

Skattalækkunum og óvæntum meiriháttar útgjöldum hafi ekki verið mætt með tekjuöflun, eftirlit með markaðsöflum sé í skötulíki á meðan fákeppni ýtir undir hærra verðlag.

„Fögrum áformum um uppbyggingu húsnæðis hefur ekki verið fylgt eftir. Allt ýtir þetta undir verðbólguna og afleiðingarnar eru hátt vaxtastig langt umfram það sem heimilin og fyrirtækin geta borið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert