Leyfa ekki breyttum ógnum að riðla Ljósanótt

Guðný Birna segir að bærinn muni ekki leyfa breyttum ógnunum …
Guðný Birna segir að bærinn muni ekki leyfa breyttum ógnunum að riðla bæjarhátíðinni. Samsett mynd/mbl.is/Brynjólfur Löve

Ljósanótt verður haldin með gleði í hjarta og verður ekki frestað þrátt fyrir auknar ógnir í samfélaginu.

Þetta segir Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, í samtali við mbl.is.

„Reykjanesbær ætlar ekki að draga úr eða hætta við hátíðina, við ætlum ekki að hætta að lifa góðu lífi þrátt fyrir breyttar ógnir í samfélaginu. Ofbeldi verður ekki liðið á okkar bæjarhátíð þar sem gleðin og ljósin eiga að ríkja,“ segir Guðný.

Aukinn viðbúnaður og þétt gæsla

Hátíðin var formlega sett í gær og má segja að ballið byrji í kvöld með glæsilegri dagskrá. Ofbeldi að undanförnu, þá sérstaklega meðal ungmenna, hefur þó valdið áhyggjum meðal margra og var til að mynda tónlistarhátíð frestað í Árbænum.

Ljós­anótt er iðulega ein fjöl­sótt­asta úti­hátíð lands­ins. Auk­inn viðbúnaður verður hjá lög­regl­unni, barna­vernd og Flot­an­um – flakk­andi fé­lags­miðstöð.

Guðný segir að þétt gæsla verði á svæðinu og hvetur hún íbúa og gesti til að koma og njóta ljósanna.

Þéttpökkuð dagskrá

Það er þéttpökkuð dagskrá fram undan um helgina í Reykjanesbæ og eitthvað um að vera alls staðar. Hafnargatan verður iðandi af lífi alla daga og tvö fyrirtæki munu halda úti tívolí ásamt því að opið verður í verslanir og á söfn.

Sem dæmi má nefna að í kvöld verða tónleikar á kjötsúpusviðinu þar sem m.a. Jón Jónsson, Magnús Kjartansson og Nostalgía munu spila.

Síðustu aldamótatónleikarnir verða haldnir í Hljómahöll og skemmtistaðir í bænum verða þá einnig með þjóðþekkta listamenn að spila. Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson taka helstu slagara Stjórnarinnar á Brons, Club Dub og Daði Ómars verða á Paddy's og Ingó veðurguð verður á Ránni.

Á morgun verður svo hápunkturinn á hátíðinni en hægt er að nálgast ítarlega dagskrá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert