Spursmál: Erum við að bregðast börnum landsins?

Björn Leví Gunnarsson, Grímur Atlason, Tryggvi Hjaltason og Teitur Björn …
Björn Leví Gunnarsson, Grímur Atlason, Tryggvi Hjaltason og Teitur Björn Einarsson eru gestir í Spursmálum. Samsett mynd

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sitja fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála sem hefst klukkan 14 í dag.

Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ungmenni særðust hafa margar spurningar vaknað um hvers konar samfélagsbreytingar eru að eiga sér stað hér á landi.

Í þætti dagsins ræða þeir Grímur og Tryggvi tæpitungulaust um afleiðingar stóraukins vopnaburðar, óöryggi og vanlíðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þessari válegu þróun. Enda um risavaxið mál að ræða sem snertir allt samfélagið í heild.

Þættinum er streymt hér að neðan og er öllum aðgengilegur. 

Sjálfstæðisflokkur í kreppu

Píratinn Björn Leví Gunnarsson fer yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Einarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og á nógu er að taka.

Stormasamur kosningavetur virðist vera í vændum. Sjálfstæðisflokkurinn á nú undir högg að sækja eftir að í ljós kom að fylgi flokksins mælist í sögulegu lágmarki.

Munu þeir Björn Leví og Teitur Björn fara yfir þessi mál og fleiri og búast má við að lífleg umræða skapist þeirra á milli. 

Fylgstu með Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14. Einnig eru þættir Spursmála aðgengilegir á Spotify og YouTube.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert