Grundarfjörður og nærsveitir eru komnar með rafmagn frá dreifikerfi RARIK en þar varð rafmagnslaust í nótt.
Í tilkynningu frá Landsneti kemur fram að verið sé að flytja vararafstöð á svæðið til að styðja við dreifikerfið og er fólk hvatt til þess að fara sparlega með rafmagnið.