Kallaðir út í tvígang fyrir misskilning

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í tvígang fyrir misskilning.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í tvígang fyrir misskilning. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkuð annasamt var hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í kvöld við að sinna útköllum vegna misskilnings.

Bjarni Ingimarsson varðstjóri segir slökkviliðið í tvígang hafa verið kallað út á sjó í kvöld þar sem í ljós kom að ekki var þörf á aðstoð þeirra.

Neyðarsendir í sæþotu fór í gang en er viðbragðsaðilar komu …
Neyðarsendir í sæþotu fór í gang en er viðbragðsaðilar komu á vettvang kom í ljós að engin var á þotunni. mbl.is/Sigurður Bogi

Sendi neyðarboð fyrir slysni

Í fyrra skiptið hafi útkallið verið úr Viðey þar sem neyðarsendir í sæþotu fór í gang en er viðbragðsaðilar komu á vettvang kom í ljós að enginn var á þotunni.

Hafði viðkomandi skilið bilaða þotuna eftir og fengið far með annarri sæþotu í land en neyðarsendirinn sendi boð út fyrir slysni.

Þá hafi önnur tilkynning borist um mannlausan bát sem væri að reka frá landi en í ljós kom að einnig væri um misskilning að ræða. Einhver hafi verið um borð í bátnum og hann ekki að reka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert