Olían á útleið á Vestfjörðum

Hörður Arnarson og Elías Jónatansson handsala samninginn.
Hörður Arnarson og Elías Jónatansson handsala samninginn. Ljósmynd/Landsvirkjun

Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun hafa undirritað samkomulag um um sölu á forgangsorku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum næstu fjögur árin.

„Þannig verður hægt að reka fjarvarmaveiturnar án þess að reiða sig á olíu sem varaafl þegar afhending raforku er skert. Í nýjum samningi eru heimildir til skerðinga en þær eru takmarkaðar við fjóra daga en ekki 120 líkt og í eldri samningi,“ segir í tilkynningu. 

„Fjarvarmaveitur hafa hingað til keypt skerðanlega orku sem er seld á töluvert lægra verði en forgangsorka, enda er hún aðeins í boði í góðum vatnsárum. Samningurinn tryggir fyrirsjáanleika í rekstri fjarvarmaveitna á Vestfjörðum með tryggri raforkuafhendingu næstu fjögur árin,“ segir í tilkynningu. 

Brúar bilið þar til jarðhitanýting hefst

„Jarðhita hefur lengi verið leitað í grennd við Ísafjörð og í sumar bárust þær gleðifréttir að 58 gráða heitt vatn hefði fundist í Tungudal.

Samningnum er ætlað að brúa bilið á meðan Orkubú Vestfjarða þróar veiturnar þannig að þær geti nýtt þann jarðhita og bætt raforkunýtingu með varmadælum.

Orkubúið hefur skoðað framtíðarrekstur fjarvarmaveitna á Vestfjörðum og komist að þeirri niðurstöðu að þessi blandaða leið jarðvarmanýtingar og varmadælna henti best. Umbreytingin sem fram undan er dregur þannig úr þörf fyrir raforku og tryggir rekstur veitnanna til lengri tíma,“ segir í tilkynningu. 

Kolefnishlutleysi 

Haft er eftir Elíasi Jónatanssyni, forstjóra Orkubús Vestfjarða, í tilkynningu að um sé ræða stærsta skref sem Orkubú Vestfjarða hafi tekið til að ná kolefnishlutleysi. 

Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í tilkynningu samninginn ánægjulegan og að það sé von Landsvirkjunar að þessi samningur marki upphaf fullra orkuskipta fjarvarmaveitna um allt land. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert