Þrír fá sjö milljónir króna hver

Rúmlega 153 milljónir króna voru greiddar út í kvöld til …
Rúmlega 153 milljónir króna voru greiddar út í kvöld til 3.894 miðaeigenda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dregið var í happdrætti Háskóla Íslands í kvöld og unnu þar þrír heppnir miðaeigendur sjö milljónir króna hver.

Milljónaveltan gekk hins vegar ekki út í þetta sinn og því verður potturinn 50 skattfrjálsar milljónir í október.

Í tilkynningu frá happdrættinu kemur fram að fimm aðrir miðaeigendur hafi hlotið eina milljón króna hver eftir dráttinn í kvöld.

Þá voru alls greiddar út rúmlega 153 milljónir króna í vinninga til 3.894 miðaeigenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert