Mál Alberts heldur áfram á morgun

Al­bert er ákærður fyr­ir að nauðga konu á þrítugs­aldri.
Al­bert er ákærður fyr­ir að nauðga konu á þrítugs­aldri. mbl.is/Iðunn

Aðalmeðferð í máli Alberts Guðmundssonar verður haldið áfram á morgun. Þetta staðfestir lögfræðingur Alberts, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.

Aðalmeðferð hófst í dag og mætti Albert fyr­ir Héraðsdóm Reykjavíkur. Er hann ákærður fyrir að nauðga konu á þrítugsaldri.

Neitaði sök

Þing­hald fer fram fyr­ir lokuðum dyr­um til að verja friðhelgi brotaþola.

Lög­fræðing­ur kon­unn­ar hef­ur gefið út að fjöl­skylda henn­ar teng­ist Al­berti vina­bönd­um frá því hún var barn.

Albert neitaði sök er hann gekk inn í dómsal í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert