Spursmál: Sjávarútvegur í skotlínu stjórnmálamanna

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja tillögur til lagabreytinga fyrir þingið á komandi hausti sem miða að því að auka gjaldtöku á sjávarútveginn.

Tillögurnar eru sagðar byggja á verkefninu Auðlindin okkar sem þáverandi matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, fylgdi úr hlaði á sínum tíma. Tillögurnar eru umdeildar og hafa forsvarsmenn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi verið gagnrýnir á málið.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi mætir í Spursmál og verður meðal annars spurð hvert sé rétt afgjald fyrir sjávarauðlindina hringinn í kringum landið.

Þingið hefst og verkalýðsforystan mótmælir

Í fréttir vikunnar mæta þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, alþingismaður fyrir Viðreisn, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, til leiks.

Þar verður meðal annars farið yfir þingsetninguna sem fram fór í vikunni, stefnuræðu forseta og mótmæli sem samtök launafólks boðaði til á miðvikudag á Austurvelli.

Allt þetta í Spursmálum á morgun kl. 14 á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert