Í fyrsta sinn sem þessir samningar eru gerðir

„Landspítali hefur óskað eftir því að hluti þessara aðgerða verði …
„Landspítali hefur óskað eftir því að hluti þessara aðgerða verði fluttur frá spítalanum,“ segir í tilkynningunni. Ljósmynd/Colourbox

Sjúkratryggingar Íslands vinna nú að því að semja við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna um framkvæmd bakaðgerða. Þetta er í samræmi við ákvörðun og fyrirmæli ráðuneytisins.

Í tilkynningu Stjórnarráðsins, þar sem frá þessu er greint, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem samningar um hryggjaraðgerðir séu gerðir. Við samningsgerðina er horft til fenginnar reynslu af samningum um liðskiptaaðgerðir sem gefið hafa góða raun.

Hryggjaraðgerðir hafa fram að þessu eingöngu verið framkvæmdar á Landspítala. Undanfarin ár hefur spítalinn ekki annað þörfinni. Of fáar aðgerðir hafa verið gerðar vegna skorts á skurðstofuplássi og biðlistar hafa lengst,“ segir í tilkynningunni.

„Landspítali hefur óskað eftir því að hluti þessara aðgerða verði fluttur frá spítalanum. Þetta verður gert í skrefum og hafa ráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands unnið að undirbúningi þessa verkefnis um nokkurra mánaða skeið.“

Samningsgerðin meira krefjandi en ella

Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem samið er við einkaaðila um framkvæmd hryggjaraðgerða er undirbúningur og samningsgerðin meira krefjandi en ella.

Á síðasta ári voru gerðir samningar við einkaaðila um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða til viðbótar við þær aðgerðir sem gerðar eru innan opinberra heilbrigðisstofnana. Í megindráttum hefur framkvæmd þessara samninga gengið vel og biðlistar hafa styst til muna. Áhersla er lögð á að nýta lærdóminn sem fengist hefur af þessum samningum og framkvæmd þeirra til að gera fyrirhugaða samninga um hryggjaraðgerðir sem best úr garði.

Mikilvægt að ekki skapist tvöfalt kerfi

Í tilkynningunni segir að rík áhersla sé lögð á að tryggja faglegar kröfur varðandi aðgerðirnar með áherslu á öryggi sjúklinga, samhliða skilvirkni þjónustunnar.

Vandað verði til mats á sjúklingum, vals á skurðaðgerð sem meðferðarúrræði og undirbúningi fyrir aðgerð. Mikilvægt er að ekki skapist tvöfalt kerfi við veitingu þessarar þjónustu, heldur að sjúklingar sitji við sama borð óháð efnahag. Forgangsröðun í aðgerðirnar byggist á faglegu, einstaklingsbundnu mati á þörf og að reglur um greiðsluþátttöku hins opinbera í aðgerðunum séu skýrar og öllum ljósar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert