Varað við stormi

Gul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi á miðnætti.
Gul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi á miðnætti. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Ísland hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna storms í nótt og á morgun.

Þær taka gildi á miðnætti. Á Suðurlandi gildir viðvörunin til hádegis á morgun en til klukkan 16 á Suðausturlandi. Spáin gerir ráð fyrir 18-25 m/s vindhraða.

Sérstaklega er varað við mjög snörpum vindhviðum við fjöll undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum og aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert