Búast megi við snjókomu í dag og á morgun

Búast má við vetrarfærð á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði.
Búast má við vetrarfærð á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Búast má við snjókomu á fjallvegum norðaustan til á landinu í dag og fram yfir hádegi á morgun. Þá verði vetrarfærð, einkum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði.

Þetta kemur fram í ábendingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

Þar segir að það hvessi í nótt með hviðum um 35 m/s í vindstrengjum við fjöll á Austfjörðum og þá helst í Hamarsfirði.

Það dragi úr vindi eftir kl 15 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert