„Nörda­nám­skeið“ í stað sál­fræði­með­ferðar

Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á kosti þess að LARP-a, …
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á kosti þess að LARP-a, en því svipar oft til meðferðartækni sem notuð er til að bæta félagsfærni. Ljósmynd/Aðsend

Þriggja mánaða LARP-námskeið fyrir ungmenni hjá Nexus Noobs hófst um helgina og er hluti af sálfræðirannsókn sem skoðar félagstengsl, sjálfstyrkingu og fleiri þroskatengda þætti hjá ungum þátttakendum.

Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingur stendur að námskeiðinu, sem er ætlað 10 til 16 ára og felur í sér hlutverkaleiki fyrir ungmenni sem hafa áhuga á ævintýrum og borðspilum á borð við Dreka og dýflissur (e. dungeons and dragons). 

„Þau fara í karakterinn og leika, skylmast, flýja og fara …
„Þau fara í karakterinn og leika, skylmast, flýja og fara í bandalög og gera í raun allt eins og í Drekar og dýflissur nema í alvörunni.“ Ljósmynd/Aðsend

Einmana krakkar með nördaáhugamál

„Ég var með unglinga hjá mér í viðtölum sem voru bara með svona „nördaáhugamál“ og mér fannst krakkana vanta félagsskap frekar en meðferð. Flottir krakkar, bara einmana af því þessi áhugamál voru ekki vinsæl,“ segir Soffía innt eftir því hvernig hugmyndin að námskeiðinu kom til.

Hún segir þó „nördaáhugamál“ á borð við hlutverkaspil og LARP hafa tekið mikið stökk í vinsældum á undanförnum árum og séu orðin mun sýnilegri og samþykktari. Í dag sé Drekar og dýflissur til að mynda kennt í nánast öllum félagsmiðstöðvum.

„Það var rosa lítill skilningur fyrir svona tíu árum fyrir því hvað þetta er mikil snilld.“

Soffía Elín Sigurðardóttir, sálfræðingur og Helgi Thor Steingrímsson, LARP-sérfræðingur.
Soffía Elín Sigurðardóttir, sálfræðingur og Helgi Thor Steingrímsson, LARP-sérfræðingur. Samsett mynd

Svipar til meðferðartækni

LARP stendur fyrir Live action role-playing game eða kvikspuna þar sem þátttakendur láta ævintýraheiminn í t.d. Drekum og dýflissum verða að veruleika.

Soffía hefur starfrækt Nexus Noobs síðan 2015 og segir starfið hafa vaxið töluvert síðan þá. Það sé að miklu leyti LARP-sérfræðingnum Helga Thor Steingrímssyni að þakka, enda leggi hann mikinn metnað í að skipuleggja ævintýrin fyrir námskeiðin.

„Mér fannst bara svo gríðarlega mikil tækifæri í að vinna með sálfræðiíhlutun í LARP-inu.“

LARP krefst mikils ímyndunarafls, undirbúnings og hæfni til þess að leysa úr alls kyns þrautum og takast á við mótlæti, að sögn Soffíu og er sömuleiðis góð leið til að stíga út fyrir þægindahringinn og kynnast fólki með sama áhugamál.

Námskeiðið er ætlað 10-16 ára og felur í sér hlutverkaleiki …
Námskeiðið er ætlað 10-16 ára og felur í sér hlutverkaleiki fyrir ungmenni sem hafa áhuga á ævintýrum. Ljósmynd/Aðsend

Bætir félagsfærni

Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á kosti þess að LARP-a, en því svipar oft til meðferðartækni sem notuð er til að bæta félagsfærni.

Segir Soffía LARP frábæra leið til að þroskast og læra að takast á við áskoranir og mótlæti í gegnum hlutverkaspil, sem þau geti síðar fært yfir á upplifanir í raunheimum. Leikurinn sé því frábær leið til að læra á virðingu, mörk, samþykki og félagshegðun.

„Í LARP-inu er bara karma. Ef einhver hegðar sér illa þá eru afleiðingar. Ef maður ætlar að ráðast á aðra og gera einhvern óskunda þá er maður bara drepinn og enginn er spenntur að lífga mann.“

„Nördaáhugamál“ á borð við hlutverkaspil og LARP hafa tekið miklu …
„Nördaáhugamál“ á borð við hlutverkaspil og LARP hafa tekið miklu stökki í vinsældum á undanförnum árum að sögn Soffíu. Ljósmynd/Aðsend

Fer út fyrir þægindarammann

Krakkarnir búi til eigin búning og karakter og geri síðan leikinn að sínum eigin. Sumir séu með leikræna hæfileika á meðan aðrir séu einstaklega áhugasamir um söguþráðinn, og í gegnum spuna og leik leysi þau þrautir og geti jafnvel fundið leikpeninga sem þau geti keypt ýmsa gagnlega hluti fyrir í leiknum.

„Þetta námskeið er náttúrulega mikið út fyrir þægindarammann hjá mörgum. Þau eru á hlaupum um helgar í 5-6 tíma á dag í alls konar veðrum og eru að leysa þrautir.“

Alls konar krakkar hafi áhuga á hlutverkaleikjum og ævintýrum og sé það í raun eina forsendan fyrir þátttöku á námskeiðinu. Kveðst hún vongóð um að starfið haldi áfram að vaxa og að einn daginn geti Nexus Noobs haldið úti námskeiðum allan ársins hring.

„Þau fara í karakterinn og leika, skylmast, flýja og fara í bandalög og gera í raun allt eins og í Drekar og dýflissur nema í alvörunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert