Smali slasaðist á fæti

Borgarnes.
Borgarnes. mbl.is/Sigurður Bogi

Smali meiddi sig á fæti í Borgarfirði um eittleytið í dag og gat ekki haldið áfram göngu.

Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, hafði smalinn meitt sig Borgarnesmegin við Hafnará. Hann var ekki langt frá veginum og var tiltölulega einfalt mál að koma honum til aðstoðar.

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi fór í verkefnið og aðstoðaði sjúkraflutningamenn við að koma smalanum í sjúkrabíl. Var hann kominn þangað um hálftvöleytið í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert