Ekki í lífshættu eftir alvarlega líkamsárás

Árásarmennirnir beittu engum vopnum.
Árásarmennirnir beittu engum vopnum. mbl.is/Ari

Sá sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás, sem dyraverðir á skemmtistað eru grunaðir um að hafa framið, var fluttur á bráðamóttöku Landspítala. Er hinn sami þó ekki í lífshættu.

Þetta segir Þóra Jónasdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Aðspurð segir hún að engum vopnum hafi verið beitt og að hún geti ekki sagt hjá hvaða skemmtistað dyraverðirnir voru að störfum hjá.

Mörg vitni að árásinni

Í dagbók lögreglu í morgun kom fram að dyra­verðir á skemmti­stað í miðborg­inni hafi verið hand­tekn­ir í nótt grunaðir um al­var­lega lík­ams­árás.

Þóra sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að dyraverðirnir yrðu yfirheyrðir en að margir hefðu orðið vitni að líkamsárásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert