Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sótti slasaðan einstakling á Helgafelli rétt eftir hádegi í dag.
Þetta segir varðstjóri slökkviliðsins í samtali við mbl.is.
Viðkomandi var fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Sjúkrabíll og tvö fjórhjól voru notuð til að sækja einstaklinginn.