Nýr bíll og ekki eðlilegt

Langferðabifreiðin sem varð alelda í Skutulsfirði er tiltölulega ný og …
Langferðabifreiðin sem varð alelda í Skutulsfirði er tiltölulega ný og kveður framkvæmdastjóri Bus Travel Iceland eldsvoðann því ekki eðlilegan. Ljósmynd/Þórður Bragason

„Það er í sjálfu sér ekkert að frétta af þessu máli núna og við höfum ekki tilkynnt framleiðanda um tjónið,“ segir Vilhelm R. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Bus Travel Iceland, í samtali við mbl.is um atvik í Tungudal í Skutulsfirði vestur á fjörðum á föstudaginn þegar eldur kom upp í langferðabifreið sem á skömmum tíma varð alelda.

Segir Vilhelm að hár hvellur hafi borist frá vélarrúmi bifreiðarinnar skömmu áður en eldurinn kom upp, sem bendi til þess að olíuleki hafi komið upp í vélinni. „Einni eða tveimur mínútum seinna stoppaði bíllinn sjálfur og þurfti að rýma hann. Farþegi aftast kallaði þá upp að eldur væri kviknaður og þá fóru allir út,“ segir Vilhelm enn fremur.

Rætt við tryggingafélagið

Munaði litlu að bifreiðin hefði verið inni í Vestfjarðagöngunum þegar hún varð óökufær og þótti mildi að svo var ekki.

„Við erum búin að tala við Vörð, okkar tryggingafélag og málið er í rannsókn. Þetta er tiltölulega nýr bíll svo þetta er ekki eðlilegt,“ heldur framkvæmdastjórinn áfram og bætir því við aðspurður að auðvelt sé að leigja bifreiðar í rútubransanum á Íslandi „og það er það sem við gerum. Annars er að róast, sumrinu að ljúka og rólegra fram undan,“ segir Vilhelm R. Sigurjónssonm, framkvæmdastjóri Bus Travel Iceland, að síðustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert