Leitin hefur ekki borið árangur

Lögreglan á Suðurlandi leitar að Illes Benedek Incze en hann …
Lögreglan á Suðurlandi leitar að Illes Benedek Incze en hann sást síðast í Vík í Mýrdal klukkan 3 aðfaranótt sunnudags. Ljósmynd/Lögreglan

Leitin að Illes Benedek Incze hefur ekki borið árangur. 

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.

Síðast sást til Illes í Vík í Mýrdal klukkan 3 aðfaranótt sunnudags.

Viðbragðsaðilar hafa m.a. notast við dróna og sporhunda við leitina sem hófst í gær og stendur enn yfir. Jón Þór býst við að lögregla taki ákvörðun um framhald leitaraðgerða í dag.

Að sögn Jóns hafa leitarskilyrði ekki verið ákjósanleg. Hefur verið þoka og súld, auk þess sem dimmt var í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert