Truflun á kortanotkun í morgun

Greitt var úr vandamálinu skömmu eftir að truflanir hófust.
Greitt var úr vandamálinu skömmu eftir að truflanir hófust. Ljósmynd/Colourbox

Tæknileg vandamál hýsingaraðila hjá Rapyd olli því að truflun varð á kortanotkun í morgun. Vandamálið varði í um það bil 40 mínútur.

Þetta segir Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd, í samtali við mbl.is.

Hafði þetta meðal annars minniháttar áhrif á viðskiptavini Landsbankans og Arion banka á meðan truflununum stóð, samkvæmt upplýsingafulltrúum fyrirtækjanna. 

Garðar segir að endanlegt umfang sé ekki vitað þar sem tíma taki að greina slíkt. Verið að greina orsök vandamálsins en hafði þetta áhrif á kortanotkun frá klukkan 7.55 til 8.35.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert