Viðbúnaður lögreglu á gatnamótum Sæbrautar og Frakkastígs í gærkvöldi var vegna leikfangabyssu. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri í samtali við mbl.is.
Í gærkvöldi greindi mbl.is frá aðgerðum lögreglu en að sögn sjónarvotts stöðvaði lögregla bifreið og voru þrír ungir menn látnir stíga út á meðan vopnaðir lögreglumenn leituðu í ökutækinu. Minnst þrjár lögreglubifreiðar voru á vettvangi.
Í dagbók lögreglu í morgun var svo greint frá því að lögregla hafi verið með mikinn viðbúnað vegna tilkynningar um loftbyssu sem síðar reyndist leikfangabyssa. Ásgeir segir að um sama mál sé að ræða.
„Málið var bara leyst þarna á staðnum og þeir voru ekki handteknir né færðir á stöð,“ segir Ásgeir aðspurður hvort einhverjir eftirmálar verði að málinu fyrir hluteigandi.
Þá segir hann að hinn mikli viðbúnaður sé samkvæmt verklagi.
„Lögreglan er með verklag sem fer í gang þegar tilkynnt er um aðila sem eru grunaðir um að vera með skotvopn meðferðis.“