Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstaklinga sem sáust um á bifreið með loftbyssu.
Talsverður viðbúnaður var vegna málsins og fann lögregla bifreiðina eftir skamma leit. Í ljós kom að um leikfangabyssu hafi verið að ræða.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Nokkuð var um að ökumenn hafi verið stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Maður var handtekinn vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna og er hann vistaður í fangaklefa á meðan málið er rannsakað.
Einn var handtekinn í heimahúsi og vistaður fangaklefa grunaður um líkamsárás.
Þá var lögregla kölluð til vegna einstaklings sem réðist að starfsfólki hótels í miðbænum.