Fimm fengu 180 þúsund krónur

Enginn fékk fyrsta vinninginn að þessu sinni.
Enginn fékk fyrsta vinninginn að þessu sinni.

Fimm einstaklingar fengu 2. vinninginn í lottó-útdrætti kvöldsins og hljóta 180 þúsund krónur. Enginn fékk fyrsta vinninginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu Íslenskrar getspár. 

Miðarnir voru keyptir á vefsíðu Íslenskrar getspár, í lottó-appinu og voru þrír í áskrift.

Sex einstaklingar fengu 100 þúsund krónur. Fjórir vinningshafar voru í áskrift og aðrir keyptu á vefnum og í appinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert