Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út laust eftir hádegi í dag til að sækja slasaðan mann við Hagabraut á Gíslholtshring í Rangárþingi ytra. Maðurinn slasaðist í fjórhjólaslysi.
Þetta segir Rannveig Brynja Sverrisdóttir, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en Rannveig segist aðspurð ekki geta sagt til um líðan mannsins. Málið sé í rannsókn hjá lögreglunni.