Jökulhlaup hafið í Skálm

Rafleiðni hefur hækkað.
Rafleiðni hefur hækkað. mbl.is/Jónas Erlendsson

Lítið jökulhlaup er hafið í Skálm en rafleiðni byrjaði að hækka í gær. 

„Þetta er bara lítið. Mjög lítið,“ segir Bjarki Kaldalón Fri­is, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is.

Þetta sé ekki í líkingu við jökulhlaupið sem varð undir lok júlí en það var talsvert stærra. 

„Rafleiðni hefur farið hækkandi í Skálm frá um hádegi í gær og mælist nú um 248 µS/cm ásamt vatnshæðaraukningar. Því viljum við biðja fólk um að sýna aðgát við upptök árinnar og nærri árfarvegnum þar sem gasmengun gæti verið á svæðinu. Engar tilkynningar um brennisteinslykt hafa enn borist VÍ,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar

„Mögulega gæti verið að um sé að ræða hægan leka jarðhitavatns undan jöklinum. Mögulega á rennsli þó eftir að aukast enn frekar og þróast út í jökulhlaup. Náttúruvárvakt VÍ mun halda áfram að vakta svæðið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert