Stal kreditkorti og verslaði fyrir háar fjárhæðir

Málið er í rannsókn hjá lögreglunni.
Málið er í rannsókn hjá lögreglunni. mbl.is/Árni Sæberg

Tilkynnt var um þjófnað á kreditkorti sem hafði svo verið notað í miðbænum til að versla fyrir háar upphæðir. Lögregla fór á staðinn til að afla upplýsinga og er málið í rannsókn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir daginn í dag.

Þá segir jafnframt að lögregla aðstoðaði við að vísa manni úr heimahúsi sem hafði brotið sér leið þar inn og neitað að fara þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir húsráðanda.

Að auki vísaði lögreglan ölvuðum manni úr sameign sem ákvað að leggja sig þar inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert